Móðirin tjáir sig
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 58034
Tónlist af bestu gerð
Bara skemmtunin ein! :0)
09.03.2008 16:54:02 / olga

Það er eitthvað bilað á bloggar.is

Kemst ekki inná síðuna mína!!:evil: Þá ákvað ég bara að prófa aftur að blogga hér:haha: Annars hlýtur þetta að komast í lag hjá bloggar.is trúi ekki öðru.Nenni samt ekki að vera á þessu flakki á milli bloggstöðva.Jæja vona það besta8|



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 19:11:40 / olga

Er flutt.......

lauga.bloggar.is

Verið ævinlega velkomin! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 19:30:07 / olga

Úfff....... þetta fór rosalega í taugarnar á mér!!!!!!

Þeir sem kaupa Bæjarpóstinn hafa örugglega lesið það sem einhver gestkomandi er alveg hneykslaður á að hér hafi ekkert verið opið af þeim stöðum sem auglýsa sig sem kaffi og veitingastaðir.Ekki veit ég til þess að Bakaríið hafi mikið verið auglýst opið á daginn þar sem gestir gangandi geti komið og fengið sér rjúkandi heitt og gott kaffi?! Ekki veit ég heldur ástæðuna fyrir því að Hótel Sóley hafi verið lokuð hvað þá Bárubúð!! Kannski vegna þess að Slysavarnarkonur selja kaffi sem fjáröflun og þessum stöðum finnist ekki ástæða til að vera með einhverja samkeppni á þessum degi helgaður sjómönnum. Svo má ekki gleyma aðalatriðinu sem er þetta.......Hér eru bara ekki lengur gerðir út togarar,þá svo að Björgvin og Björgúlfur séu skráðir sem Dalvíkurbátar þá vill svo til að Samherji á þessa togara.Ekki landa þeir aflanum sínum hér...ónei.....hér hefur ekki landað togari svo mánuðum skiptir.Stærsti aflabáturinn sem landar hér á höfninni er Stebbi Rögg! Því miður er það staðreynd að Sjómannadagurinn er bara dáinn,hér allavega.Því það þarf jú sjómenn og þeir eru ekkert allt of margir orðnir eftir hér í byggðarlaginu! Þeir sem eftir eru,eru orðnir svo á víð og dreif um landið,það er bara ekki hægt orðið að skipa í svokallaða sjómannadagsráð út af einmitt þessu.En þá er alltaf spurningin um að skipa ráð sem mundi starfa á landi? En ég sé það bara ekki gerast því miður. Svo var það nú annað sem þessi ágæti "gestur"segir og það er það að við (dalvíkingar) látum eins og við séum aðalÚTGERÐARPLÁSSIÐ á Íslandi þegar þannig stendur á......ég er ekki alveg að fatta svona blammeringu.Við kannski gerum okkur út fyrir að vera aðalFISKVINNSLUPLÁSSIÐ á landinu en hitt er bara fáviska og ekkert annað:evil: Já svo talar hann um húllum hæið sem var í Ólafsfirði um liðna helgi sem er gott og blessað,hvað má annað vera en húllum hæ á stað þar sem eru rúmlega 100 manns sem vinna þar á togurum gerðir út frá Ólafsfirði og landa í flestum tilfellum í sínum heimabæ!!! Hér liggur aldrei togari bundin við bryggju.Hefur fólk ekki tekið eftir því??? Mér finnst ekkert skrítið þó svo að hér sé ekki skipulögð dagskrá,held að þið hin verðið að sætta ykkur við það líka. Tímarnir breytast og mennirnir með, ekki satt?? Ég gæti skrifað miklu meira um þetta mál,en endilega kommentið og segið ykkar skoðun á þessu:D

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 12:42:02 / olga

Þetta helst.....

* SERBAR UNNU EVRÓVISJÓN

*RÍKISSTJÓRNIN HÉLT NAUMUM MEIRIHLUTA

*ÉG KAUS EKKI FRAMSÓKN

*ÉG KAUS FRJÁLSLYNDA FLOKKINN

*OG SIGGI LÍKA

*VARÐ VITNI AÐ ÞVÍ ÞEGAR RÚV RAUF ÚTSENDINGU EVRÓ TIL AÐ KOMA FYRSTU TÖLUM ÚR KOSNINGUM AÐ..........FÍFLASKAPUR ALDARINNAR ÞAR Á FERÐ!!!!!!!

*ER AÐ DREPAST ÚR VÖÐVBÓLGU

* ER AÐ FARA TIL REYKJAVÍKUR Á MORGUN Í HÚSMÆÐRAORLOF

* DJÖFULL SEM ÞAÐ VERÐUR NOTALEGT

* HERMANN,BERGLIND OG HEIÐAR MÁNI,HLAKKA MIKIÐ TIL AÐ HITTA YKKUR ANNAÐKVÖLD:haha: 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 16:48:48 / olga

Ríksflokkurinn!!

Hver mundi ekki vilja fá Martein Mosdal á þing? Ég bara spyr!!

Er í algjörri tilvistakreppu hvað varðar alþingiskosningarnar  n.k. laugardag,veit ekkert hvað ég á að kjósa.Ég er víst flokksbundin en ég hef kosið fram hjá, ef satt skal segja, ég er nú eiginlega kominn á það að gera slíkt hið sama aftur:S

Evróvisjón kvöldið mikla nálgast,og verður GRÍÐALEGA spennandi að fylgjast með eilífðar töffaranum Eika Hauks!!! Vonandi kemst hann áfram og gerir okkur íslendinga svo stolt:D Mín spá er sú að Rússar vinni og Tyrkir og Grikkir geri góða hluti:!: (Kem kannski með spá eftir fimmtudagskvöldið8| Topp 10)

Opna húsið á Kríló verður einnig sama dag og kosningar og Júró,þannig að móðirin verður á kafi gjörsamlega allan fokk... daginn! Kannski maður bara taki G&T á´essu,þá sjaldan sem maður lyftir sér upp;):!:

Æi rassgat!!!! Hvar er allt góða veðrið?? Hlakka svo til að komast í sumarfrí!!!!!! Er að verða ansi leið á þessu ástandi í vinnunni,ég er svo einmanna að ég fer bráðum að einangrast og hætti að kunna að tala eða eitthvað álíka:frown: 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 19:58:39 / olga

Jamm og jæja.......

......það er bara sonna,loksins nenni ég að eitthvað að tjá mig hérna:$ Kýpur ferðin er semsagt búin og mikið afskaplega sem hún var góð:haha: Eini gallinn..... þetta var svo helvíti langt ferðalag,en sem betur fer er hægt núna að hafa það styttra,þannig að maður drífur sig aftur við fyrsta tækifæri ekki spurning:!: Veðrið var alveg ljómandi fínt,3 eða 4 sólarlausir dagar minnir mig þessar 2 vikur og hitinn bara bærilegur,aðeins heitara en var hér í dag.Bara þægilegt sko.Krakkarnir voru alveg voðalega ánægð þarna og líkaði vel hitinn,en þau fóru þá bara inn og horfðu á tv´ið og móðirin flatmagaði á sólbekkjunum8) Því miður var ekki búið að opna neina rennibrautargarða enda kannski ekki orðið nógu heitt fyrir heimamenn,það var bara fyndið,þeir litl klæddu sig í síðbuxur ,skyrtu og ullarvesti meðan íslendingarnir spókuðu sig bara á naríunum og julluhaldaranum,get ekki sagt að þeim hafi fundist það eitthvað leiðinlegt;) Við vorum ekki á þessum týpiska túristastað,ónei við vorum bara í miðjum Tyrkjafansi og líkaði bara vel,rosalega almenninlegt og kurteist fólk.Yfirleitt tengir maður Tyrki við eitthvað.......æi mig vantar orð....... þið vitið Halim Al og eitthvað8| Veit ekki hvort þið skiljið mig :| Jæja við náðum að skoða nánasta umhverfi vorum með bílaleigubíl og gátum því aðeins rúntað um svæðið.Rosalega fallegt,, finnst mér allavega:D Ég mundi setja eitthvað af myndum á síðuna ef ég gæti og kynni:$ Ekki skemmdi fyrir að hafa skemmtilega ferðafélaga en auðvitað vantaði þau allra skemmtilegustu,Hermann,Berglind og Heiðar Mána en þau gátu því miður ekki komið með,en bara næst:!: Það var farið í mjög svo ævintýralega siglingu þar sem dalvískir sjóarar gátu látið ljós sitt skína,ó mæ ó mæ það var sko yndisleg ferð sem ekki verður sett hér á blað,ég gæti sært þá sem ekki höndluðu þessa ferð:haha: 2 kastalar voru skoðaðir einn við sjóinn og hinn lengst uppí fjöllum og þurfti að ganga tæplega 800 tröppur til að komast uppá topp á fjallið,þá blasti við ægifagurt útsýni,segja þeir sem gengu alla leið:$ Þetta var svona það helsta úr ferðinni,stiklað á mjög stóru mundi ég segja.

En svona að allt öðru,þá var bara bongóblíða í dag og við nutum blíðunnar eins og sönnum íslendingum sæmir.Sólin var alveg sleikt fram á það síðasta:P Það þýðir ekkert að tapa ALLRI brúnkunni sem maður náði sér í á Kýpur;) Alveg rosalega brún:!::!::D En nú bíður maður bara eftir Evróvisjón og kosningum,ekki alveg með það á hreinu hvað ég kýs,en ég hlýt að vera búin að ákveða mig þegar ég fer í kjörklefan,vona það að minnsta kosti. Heyrðu ég kalla þetta nokkuð gott í bili,svei mér þá:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 15:18:39 / olga

Kebab og fl.gott

Ok!! Sit her a netkaffi og er alveg ad fila tetta i raemur8) Buid ad vera alveg aedislegt vedur og allt bara daelıgt:D Tad verdur bara ferdasaga tegar vid komum heım.Nenni ekkı ad skrıfa heila ritgerd nuna;) Heyrumst aftur...bae a medan:D

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 20:41:25 / olga

jibbíbjei jibbí jibbí jei!!!

Ferðalagið heftst á morgun eftir vinnu hjá móðirinni.Í þessum skrifuðu orðum er verið að gera klárt í ferðatöskurnar..............eða næstum því............við erum ekkert farinn að pakka niður:$ Það verður gert í rólegheitum á eftir þegar börnin eru komin í ró.Nenni ekki að vera gera þetta með börnin ofaní hálsmálinu á mér:D Þetta verður langt og strangt ferðalag og verður gaman að vita hvernig krakkarnir höndla þetta:| Ferðatilhögun: Lagt af stað í borgina um 1500 á morgun,áætlaður ferðatími 4-5 klst. Kíkkum á pabba gamla og hans konu áður en haldið verður til Keflavíkur þar sem verður gist,ræs á föstudagsmorgunin kl 0430 mæting á völlinn ekki seinna en 0530,flug kl 0715 til köben, þurfum að eyða megninu af deginum þar í eitthvað vitlegt, flogið áleiðis til Kýpur um kvöldið,millilent í Póllandi og lent á suðurhluta Kýpur um nóttina, þurfum svo að keyra um 1 klst. áður en komið verður á áfangastað.ÚFF þetta verður strembið8| En maður lætur sig hafa það8) Þannig að við verðum mætt við sundlaugarbakkan á laugardeginum,þá megiði byrja að öfundast:haha: neinei segi sonna. Við verðum vonandi orðin nettengd á meðan dvöl okkar stendur þannig að aldrei að vita nema maður bloggi eitthvað á meðan:D Jæja við heyrumst bara síðar og vil ég óska ykkur öllum gleðilegra páska,djammiði nú eitthvað um páskana,geriði það nú fyrir mig;) SÍJA :cry: (ég að kveðja ykkur með tregatárum)

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 09:18:15 / olga

GRACE KELLY

Þið litl hélduð að ég væri að fara skrifa um konuna sjálfa,en nei aldeilis ekki:D Þetta er nafn á lagi sem er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Það er í það miklu uppáhaldi að ég verð hreinlega að heyra að minnsta kosti einu sinni á dag8| Er þegar búinn að hlusa á það 2x á u tube í morgun:haha: Maðurinn sem syngur heitir Mika og ég er ekki frá því að maður heyri smá Freddie Mercury í röddinni.Bara mitt álit:haha:

Það styttist í Kýpur,einungis 28 dagar í brottför og hér ríkir mikil tilhlökkun hjá foreldrunum en börnin eru ekkert að fatta þetta,samt spyr Sara "hvað eru margir dagar þangað til í dag mamma" en Viggi minn sem er svo jarðbundin hann er ekkert viss um að hann vilji fara í flugvélina:$ En með öllum ráðum skal drengurinn fara,ég verð þá bara að gefa honum svefntöflu eða eitthvað og halda á honum hálf rænulausum út í vélina;) nei nei það er nú svolítið gróft. Spurning hvort maður eigi að fara leggjast í ljósabekkina til að vera ekki eins og þurrkaður hundaskítur þegar maður fer í stuttbuxurnar8| Annars eru allir komnir með vegabréfin sín og tilbúin til brottfarar:D8)


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 11:13:28 / olga

Hann er sekur um glæp, útskúfaður.......

Hvar skal byrja???? Jú ég byrja á að segja frá síðustu helgi:D Ég skrapp til Reykjarvíkur í pílagrímsferð á Júróvisjón.Flaug suður á föstudagskvöldið,smá seinkun á flugi og Hermann og fjölsk.beið bara aðeins lengur á vellinum til að taka á móti helgargestinum,Hermann var nefninlega að opna Ferðaþjónustu bænda gistiheimili á ný eftir slæmt gjaldþrot.Ekki var boðið uppá Corn Flakes en ég lét mér Cheeriosið duga.Og nokkra Subway og Rizzo pizzu,,,daufa! Á laugardeginum var maður vakinn af prinsinum á heimilinu sem heimtaði að komast fram til að líta á fyrsta gestinn á gistiheimilinu. Aldrei þessu vant þá var rétt litið við í Kringlunni áður en ég fór og hitti aldraðan föður minn,við mæltum okkur mót á Hressingarskálanum þar sem við fengum okkur smá næringu.Eftir góðan dag með karl föður mínum var haldið heim á leið,þá meina ég gistiheimilið, til að græja sig fyrir partý ársins!!! Móðirin skellti sér í fínasta púss og ásamt gestgjafanum var farið í partý til Dagmar og Jóa þar sem elítan hittist og fékk sér að borða og drekka fyrir sjónvarpsútsendingu.Haldið var af stað í Loftkastalann þar sem herlegheitin voru og ekki vantaði celebið maður öss öss öss,,,slaka! Friðrik sté fyrstur á svið og stóð sig eins og hetja,lýðurinn tryllist gjörsamlega en það var ekki nóg.Þrátt fyrir sjálflýsandi prik gekk það ekki upp,annað sæti var staðreynd.Ég er svolítið svag fyrir Eika Hauks,en ég vonaði pínu að hann myndi syngja "Sekur"í staðinn fyrir "Ég les í lófa þínum" Jæja nóg um það. Vonsvikinn Friðrik Ómar stefndi liðinu á Broadway þar sem hann er með í Tinu Turnar showinu,og spilar á skemmtara af þvílíkri snilld að annað eins hefur varla sést eða heyrst svo syngur hann auðvitað eins og engill þess á milli.Við tók svo leiðindar rúntur um borgina og alla leið í Kópavog þar sem Players er staðsettur."Hr.Húsin hafa augu" var að syngja ásamt sínu bandi þar,en því miður komumst við ekki þar inn því það var gjörsamlega troðið inni og fleiri metra biðröð fyrir utan.Nasa var því næsti viðkomustaður,enginn röð þar.Rétt náði að berja "Tornero" gaurinn augum ,en ég missti af honum í Júró.Eiki mætti í leðurfrakkanum og með gítargógópíurnar og gjörsamlega tryllti alla gestina með lófalestri á ensku og þar með var móðirin búin að fá nóg af skemmtana lífi borgarinnar,fór á besta matsölustað RVK og fékk sér einn sveran Nonna og hélt heim á leið á hóteldýnuna. Endilega setjið ykkur í samband við Hermann ef ykkur vantar gistingu í borginni,annars ætla ég að starta söfnun þar sem fólk er endilega beðið um að leggja inná reikning sem ég mun skíra " Svefn og Heilsa" og söfnum fyrir góðu rúmi á gistheimilið.

Án gríns,þá var þetta hrikalega skemmtileg helgi og vil ég senda öllum þeim sem gerðu hana skemmtilega góðar kveðjur:D


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 18:17:05 / olga

Jájá ég er á lífi!!

Örvæntið eigi þó eg skrifi seint og um síðir,því eg boða hvort eð er engan fögnuð:S Jamm það styttist óðum í suðurferð og ég er alveg farinn að hlakka til sko8) Ég á nú reyndar eftir að redda mér gistingu en ég geri bara ráð fyrir að Hermann og Berglind búi um mig á stofugólfinu:D Það verður örugglega suddalegt fjör á Júróúrslitakvöldinu,bara blanda nógu mikið af G&T í nesti og ég er vel sett;) Annars held ég að ginið mitt verði útrunnið í vínskápnum ef ég drekk það ekki um helgina,komst að því að bjór rennur út ef maður drekkur hann ekki fyrir tilsettan tíma.Átti 2 dósir hér í geymslunni og viti menn hann var kominn fram yfir síðasta söludag,svo er Breezer í ísskápnum hjá mér sem er líka runnin út:$ Ég hef komist að því að ég er ekki efnilegur alki,það segir sig sjálft er það ekki:!::!: Svona miðað við allt útrunna áfengið í húsinu mínu allavega:lol:

Annars er bara allt gott að frétta héðan úr Drafnarbraut,allir frískir og sprækir:haha: Var að vinna frá 8-14 í gær og í dag og er alveg eins og undin tuska,Halldóra var sko í fríi þannig að ég var ein með matinn. Svo er foreldrafundur í kvöld á Kríló,væri alveg til í að vera bara heima í kvöld, því ekki þýðir að senda faðirinn því hann er að vinna í allt kvöld:( Samt er maður alltaf til í að heyra eitthvað gott um börnin sín, segir stolt móðir:D Sara átti víst eitt gullkorn í dag á leikskólanum,þær vinkonur Sóley María og Sara voru að tala um mann með byssu sem var búinn að skjóta mikið,svo æstust leikar og fallbeygingarnar voru farnar út um veður og vind.Þetta endaði þannig að maðurinn "skeit" hann,(ekki skaut hann heldur skeit hann):haha::haha::haha: Yndisleg börn:D

jæja þá verður þetta ekki lengra í dag,ég kveð í bili og segi"Far vel, far vel"


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 15:33:35 / olga

Og action!



Góð helgi að baki og örugglega fín vinnuvika sem hófst í morgunn:D Móðirin er að verða kvikmyndastjarna hér í Dalvíkurbyggð:haha:.Þannig er mál með vexti að ég fékk símtal á föstudaginn þar sem ung stúlka bauð mér að leika í stuttmynd sem hún og önnur stelpa eru að gera.Þetta er verkefni tengt skólanum og það er Freyr Antons sem hefur umsjón með þessu verkefni,auðvitað sló móðirin til.Ekki á hverjum degi sem manni er boðið að vera með í kvikmynd;) En það fór semsagt megnið af gærdeginum í upptökur og þetta er alveg bráðsniðugt,þó ég segi sjálf frá:!: Heilsan varð samt eitthvað slök svona þegar líða tók á daginn,held ég að hamborgarinn úr S.Ó skálanum hafi verið eitthvað skrýtinn:$ Eða kókið kannski .......nei.....ekki alveg,heldur var ég að fagna fyrir hönd Friðriks Ómars heima hjá Kötu Árna og líka á Bakaríinu8) kvöldið áður. Þannig að ég held svei mér þá að ég sé á leið til Reykjarvíkur þann 17 febrúar n.k.:haha: Ég vona samt að faðirinn á heimilinu gefi mér brottfaraleyfi:$

En semsagt, tökur á stuttmyndinni halda áfram á miðvikudaginn og hlakka ég mikið til að sjá myndina:!:
Læt þetta næga í bili og munið elskurnar að horfa á Lost í kvöld og líka Heroes,eitt að lokum,Guð blessi Rúv+ :haha::haha::haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 15:13:13 / olga

Grasekkjan ég!






Jú þið lásuð rétt! Móðirin er grasekkja í 3daga.:cry: Siggi minn þurfti að fara á eitthvað námskeið í borginni,og ég bara ein heima með börnin:( Þetta er bara eins og þegar hann var á sjónum.Æi ég var eitthvað svo óörugg í nótt,þó svo að ég hafi haft bæði börnin hjá mér í rúminu.

Júró byrjað og það bara byrjaði ágætlega,var samt ekkert að hrópa húrra fyrir nokkrum lögum þarna,en er bara nokkuð sátt við lögin 3 sem komust áfram.Búið að bjóða mér í Júrópartý á næsta laugardag,aldrei að vita nema ég mæti:haha: Kata við ræðum þetta með RVK ferðina síðar:!::!::!: Ég missi ekki af henni aftur:D
Að allt öðru og mikivægu:!:Uppáhaldssjónvarpsþátturinnminn LOST hefst mánudaginn 29.janúar8| ójibbíjei hvað ég hlakka til,bestu sjónvarpsþættir sem ég hef séð(utan við Friends)En annars er Heroes helvíti góðir,mæli með þeim:!: Jæja þá,ég heyri í ykkur aftur :0*






» 8 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 15:43:52 / olga

Takk fyrir Tvíhöfði......



.....að vera mættir aftur á öldur ljósvakans.Ég dýrka þessa menn,allt sem þeir gera er tær snilld:haha: Finnst mér allavega. Þegar ég fór á vertíð suður(fór til RVK í 2 ár) til að vinna þá var Tvíhöfði málið:!: Ég meira að segja tók upp heilan þátt á kasettu áður en ég flutti aftur heim,svo mikill aðdáandi var ég.Gat ekki hugsað mér að fara norður án þeirra;) Ég sat áðan við eldhúsborðið og hlustaði á gamla vini mína,mikið var það ljúft:D Þar sem ég vann í Rvk var meðalaldurinn 35 ár og það voru bara allir sem hlustuðu,stundum var varla hægt að vinna maður hló svo mikið,og tónlistin sem þeir spiluðu...... ekki hægt að segja að hún hafi verið góð:!: Fyndastu atriðin eru án efa "smásálin" þar sem "fólk" átti að hringja inn og það mátti kvarta eða hrósa,þvílíkt og annað eins bull sem oft varð úr því:lol: En já ég er bara alveg hreint í skýjunum yfir þessu,og ekki oft sem ég hlusta á rás 2:$ En það verður fastur punktur hjá mér í vetur að setjast við útvarpstækið á sunnudögum til að hlusta á Tvíhöfða:haha::haha:

Annars er ég bara búinn að húsmæðrast í dag,setja í þvottavél og þurrkara brjóta saman þvott og baka....... ég er alveg on fire í dag hvað varðar húsmæðrastörfin.Kannski vegna þess að ég er búinn að drekka eitthvað baneitrað Herblife te,hver veit nema ég sé bara orðin ofvirk af þessari tedrykkju8| En jæja áfram ég og rás 2 ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 20:08:24 / olga

Gleðilegt nýtt ár allir saman!




Ein voða snemma í því:S Ég er ekki alveg að nenna þessu,þessa dagana. En allt í góðu samt er ekkert að missa mig í einhverja fýlu:haha: Vill benda á Völvuspána í Vikunni( tímaritinu)hún er byrjaði allavega ekki vel,sagði að Saddam yrði ekki tekinn af lífi á þessu ári og réttarhöldin yfir honum yrðu löng!!! Hvað gerist? Saddam dauður áður en árið er liðið8| Svo var það eitthvað annað líka, man það bara ekki í augnablikinu:$



Fyrsti vinnudagurinn á nýju ári var í dag og svo er lokað á Kríló á morgun og hinn vegna starfsdags og námskeiðsdags.Svo er bara komið aftur frí! Þetta er ágætt, næsta frí verður ekki fyrr en á páskum,þá er Krítarferðin mikla8) En það sem mig hlakkar mest til er að byrja að sprikla aftur eftir helv.... langt jólafrí.Djöf... verður tekið á því:klikk: Ætlaði meira að segja að versla mér kort í ræktinni og skella mér þangað áður en ég byrja að vinna á morgnana,mæti svo fersk og spræk í eldamennskuna:D En hvað skyldi ég nú endast lengi þar?????? alltaf sami kvitterinn þegar ég er í ræktinni:( Ég strengdi enginn áramótaheit og hef nú reyndar aldrei gert það og hafði ekki hugsað mér að byrja á því.........veit því ekki afhverju ég skrifaði þetta en eníhjú...... 2007 leggst ágætlega í mig, aðeins eitt ár í það móðirin verði 30tug og það verður nú gaman skal ég segja ykkur8) selabreit gúd tæms kommon,itsa selebreisjon vúhú:!::!::!:
Jæja segjum það í bili



» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1217 dögum
Móðirin þrítug
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 febrúar